Janúar uppfærslan 2021

Eftir hæga byrjun á þessu ári þá eru hlutirnir farnir að raðast upp.

Fjármálastjóri tók til starfa í dag hjá fyrtækinu, sem er mikið verkefni þegar skoðað er hvað er framundan og hversu hraður vöxturinn getur orðið á árinu.

Við erum búin að ráða í starf öryggisstjóra sem mun einnig sjá um að leiða nýja þjónustu sem verður kynnt á næstunni, en hún snýr að nýjum viðskiptavinum og núverandi viðskiptavinum til að hækka þjónustustig okkar enn frekar.

Á næstu dögum verða fjölmargar umsóknir um starf yfirfarnar, en auglýst var eftir smiðum, verkamönnum og tækjastjórnendum.